Kennarar og starfsfólk

Við skólann starfa frábærir kennarar sem allir hafa mikla reynslu í að starfa með börnum, við kennslu og/eða mikla reynslu úr tónlistarlífi landsins.

bjarni

BJARNI SVEINBJÖRNSSON

BASSI - GÍTAR - SAMSPIL
bjarni@teb.is

Bjarni lærði ungur á gítar og bassa hjá Tónskóla Sigursveins og síðar á bassa í Tónlistarskóla FÍH. Bjarni útskrifaðist sem bassaleikari frá Musicians Institute (MIT) í Los Angeles árið 1985 og hefur síðan þá verið einn af eftirsóttustu bassaleikurum landsins. Bjarni hefur kennt við marga tónlistaskóla þar á meðal Tónlistarskóla FÍH, Tónlistarskólann í Hafnarfirði og Listaskóla Mosfellsbæjar. Bjarni kennir nú eingöngu við Tónskóla Eddu Borg. Bjarni hefur haldið tónleika og gefið út sína eigin tónlist auk þess að leika með mögum af okkar fremstu tónlistarmönnum. Bjarni er meðlimur í hljómsveitinni Gammar sem leika nýja tónlist eftir meðlimi á Jazzhátíð Reykjavíkur 2020.

edda

EDDA BORG ÓLAFSDÓTTIR

SKÓLASTJÓRI
skolastjori@teb.is

Edda Borg lærði á píanó á Ísafirði hjá Ragnari H. Ragnar frá 6 ára aldri. Eftir grunnskóla flutti Edda til Reykjavíkur og stundaði nám við Tónlistarskólann Í Reykjavík hjá Halldóri Haraldssyni píanóleikara og útskrifaðist sem Tónmenntakennari vorið 1988. Ári síðar stofnaði Edda Tónskóla Eddu Borg.

Edda hefur verið virk í tónlistarlífinu bæði sem hljóðfæraleikari og söngkona síðan hún var 16 ára. Edda hefur gefið út tvær plötur með eigin efni “No Words Needed” sem kom út árið 2013 og “New Suit” sem kom út vorið 2019

trommur_26

Þorvaldur Þór Þorvaldsson

SLAGVERK - TROMMUR
@teb.is
Þorvaldur Þór Þorvaldsson er með mastersgráðu í djasstrommuleik frá New England Conservatory of Music í Boston og Bachelors gráðu í djasstrommuleik frá University of Miami. 
Hann byrjaði fyrst að kenna árið 1997 og hefur auk trommukennslunnar kennt tónfræði, hljómfræði og tónheyrn við ýmsa tónlistarskóla.
Þorvaldur hefur víðtæka reynslu sem “session” maður, leikið í ýmsum hljóðversupptökum með öllum frá Sinfóníuhljómsveit Íslands til Frikka Dórs, eða sem hljóðfæraleikari í ýmsum hljómsveitum og komið fram í yfir 30 löndum.
halldor

HALLDÓR SVEINSSON

PÍANÓ
halldors@teb.is

Halldór hóf tónlistarnám við Tónlistarskóla Ísafjarðar 8 ára gamall og lærði þar bæði á píanó og fiðlu. Hann lauk B.A. gráðu í Menntun og miðlun árið 2011 og meistaragráðu í listkennslu árið 2016 frá Listaháskóla Íslands. Einnig hefur Halldór stundað nám í rytmískri tónlist við FÍH og Jazz-Schule Berlín. Halldór hefur starfað sem píanókennari frá árinu 2012 auk þess að kenna tónfræðigreinar. Hann er einnig starfandi tónlistarflytjandi og hefur komið fram með ýmsum hljómsveitum og tónlistarmönnum.

Halldór hefur kennt við TEB frá haustönn 2012.

moeidur

MÓEIÐUR SIGURÐARDÓTTIR

FIÐLA
moeidur@teb.is

Móeiður Anna Sigurðardóttir fiðlukennari hóf nám á fiðlu en færði sig yfir á víólu á unglinsárunum og lærði hjá Helgu Þórarinsdóttur. Þaðan lá leiðin til Bandaríkjanna og stundaði lauk hún BM nám hjá Patrica McCarty í Boston Conservatory áður en hún flutti sig yfir í Boston University og lauk þar MM námi í víóluleik hjá Georg Neikrug. Eftir það tók hún Post Graduate gráðu hjá Marjolein Dispa í Sweelinck Conservatorium í Amsterdam. Að námi loknu hóf hún störf sem víóluleikari hjá Opera North í Leeds í Englandi þar sem hún starfaði í 7 ár. Síðan hún flutti heim til Íslands hefur hún sinnt fiðlu og víólukennslu ásamt því að leika með hljómsveit Íslensku Óperunnar, SinfoniaNord, Sinfóníuhljómsveit Íslands ofl. Hún hefur kennt í Garðabæ og Grafarvogi auk þess að starfa í Tónskólanum Do Re Mi frá 2015. Móeiður hóf störf í Tónskóla Eddu Borg haustið 2021.

rag

RAGNHEIÐUR BJARNADÓTTIR

PÍANÓ
ragnheidurb@teb.is

Ragnheiður hóf tónlistarnám sitt í Skagafirði og hlaut kennslu fyrst á Hofsósi og síðar á Sauðárkróki hjá ýmsum kennurum, tók 8. stig á píanó þar og útskrifaðist frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki af félagsfræði- og tónlistarbraut.
Hún hóf nám við Tónlistarskólann í Reykjavík haustið 1995 hjá Peter Máté og lauk píanókennaranámi þaðan vorið 1999.
Ragnheiður hóf kennslu við Tónskóla Eddu Borg haustið 1997.

vigdis_teb

Vigdís Garðarsdóttir

FORSKÓLI - TÓNFRÆÐI
vigdis@teb.is
Vigdís stundaði nám við Tónlistarskóla Eyfjarðar og Akureyrar frá barnsaldri og útskrifaðist sem tónmenntakennari frá Tónlistarskóla Reykjavíkur árið 2000. Hún hefur starfað sem tónmenntakennari og almennur kennari á Flateyri, Akureyri, Sólheimum í Grímsnesi og í vesturbæ Reykjavíkur. Hún hóf störf sem tónfræðikennari haustið 2020.
orvar_teb_pno

Örvar Ingi Jóhannesson

PÍANÓ
orvar@teb.is

Örvar útskrifaðist frá Nýja Tónlistarskólanum árið 2006 með burtfararpróf í píanóleik. Hann fór eina önn til Bretlands og sótti einkatíma hjá Carola Grindea. Örvar hefur starfað sem píanókennari við ýmsa skóla, þar á meðal: Tónlistarskóla Fáskrúðsfjarðar 2007 – 2008, Tónlistarskóla Reykjanesbæjar 2008 – 2015 þar sem hann var einnig meðleikari,  Tónmenntaskóla Reykjavíkur 2009 – 2015 og Tónlistarskóla Grindavíkur 2016 – 2018 og aftur 2020 – 2025. Örvar hefur bæði kennt einkakennslu og gefið út kennsluefni fyrir byrjendur á píanóleik.

Vigdís Garðarsdóttir

Scroll to top