Skólareglur

  1. Nemendum ber að mæta stundvíslega í hljóðfæra- og hóptíma. Veikindi og aðrar fjarvistir ber að tilkynna til skrifstofu, af forráðamanni, eins tímanlega og unnt er.
  2. Kennara ber ekki að bæta upp fjarvistir nemanda t.d. vegna veikinda þeirra eða annara leyfa.
  3. Nemanda ber að ganga snyrtilega um skólann og eigur hans.
  4. Nota snaga í anddyri fyrir yfirhafnir og skila skófatnað eftir í anddyri.
  5. Ganga vel um skólahúsnæðið og eigur skólans.
  6. Forðast hávaða á göngum.
  7. Fara vel með bækur.
  8. Hegðun nemanda ætti alltaf að vera til fyrirmyndar. Ef upp koma hegðunarvandamál áskilur skólinn sér rétt til að taka á slíkum málum í góðri samvinnu við foreldra.
  9. Nemanda ber að fara vel með leiguhljóðfæri og önnur hljóðfæri skólans. (Ekki að lána óviðkomandi, leiguhljóðfæri).
  10. Foreldrar sem hafa á leigu hljóðfæri hjá skólanum vegna barna sinna gera leigusamning við skólann.
  11. Valdi nemandi skemmdum á hljóðfærum eða eigum skólans ber forráðamanni að bæta skaðann.
  12. Nemandi mæti stundvíslega og snyrtilega klæddur á tónleika skólans. (A.m.k. 15-20. mín. fyrir tónleika).
  13. Ætli nemandi að koma fram utan skólans ber að tilkynna það kennara með góðum fyrirvara. Kennari getur þá aðstoðað nemandann við æfingar og gengið úr skugga um að flutningurinn sé vel frambærilegur.
  14. Ef kennari veikist og tími fellur niður er alltaf reynt að ná sambandi við heimili nemanda eða vinnustað foreldra. Kennara ber ekki skylda til að bæta nemanda upp þær kennslustundir sem falla niður vegna veikinda hans. Ef kennari er hinsvegar veikur til lengri tíma ber skólastjóra að sjá til þess að forfallakennari verði fenginn á meðan.
Scroll to top