Námskeið eru frábær leið til að læra grunnatriðin í hljóðfæraleik. Við bjóðum upp á 8-10 vikna hóptíma, fyrir börn og fullorðna sem eru kennd einu sinni í viku.
Gítarnámskeið fyrir fullorðna – 8 vikur
Skemmtilegir hóptímar þar sem farið er yfir helstu undirstöðuatriðin í gítarleik. Nemendur læra að spila grip og notast er við þekkt dægurlög
Skemmtilegir hóptímar þar sem farið er yfir helstu undirstöðuatriðin í gítarleik. Nemendur læra að spila grip og notast er við þekkt dægurlög
Bassanámskeið fyrir börn – 10 vikur
Farið er yfir undirstöðuatriði bassaleiks á skemmtilegan og gefandi hátt.
Trommunámskeiðfyrir börn – 10 vikur
Það geta allir æft sig á trommur þótt þeir hafi ekki óhindraðan aðgang að trommusetti. Það er til dæmis hægt að æfa sig helling á platta og fá svo útrás á settinu inn á milli.
Hljómborðsnámskeiðfyrir börn – 10 vikur
Farið í grunnatriði hljómborðsleiks, laglína með hægri hönd og hljómar með vinstri hönd.
Skráningar á námskeið fara fram undir flipanum “Umsóknir”.