Öflugt barnakórastarf í Breiðholti
Tónlistarskóli FÍH – Edda Borg eru að fara af stað með öflugt kórastarf fyrir krakka í Breiðholti á aldrinum 8-12 ára skólaárið 2026-2027.
Ætlunin er að vinna með margskonar tónlist þar á meðal popp tónlist og annað sem þau eru að hlusta á og þekkja. Áhersla er á að kenna þeim söng, raddtækni, dans og framkomu. Hóparnir munu síðan halda tónleika a.m.k. einu sinni á hvorri önn í nánu samstarfi við starf tónlistarskólans.
Skólinn hefur fengið styrk úr styrktarsjóði „Virkjum Breiðholt“ en metnaður tónlistarskólans er að veita sem flestum tækifæri á að njóta þess að kynnast tónlist, styrkja sig félagslega og viðhalda sterkri sönghefð frá unga aldri.
Ekkert gjald er tekið fyrir kórinn.
Æfingar fara fram einu sinni í viku í Breiðholtsskóla fyrir nemendur Breiðholtsskóla og í Kleifasrseli 18 fyrir nemendur Selja- og Ölduselsskóla. Stefnt er á að fara í æfingabúðir á vorönn.
Skráning fer fram hjá ritara á skrifstofum skólanna og hér á síðunni undir umsóknir.